skip to Main Content

Þjónustuíbúðir Ísafjarðarbæjar innleiða þráðlausa öryggishnappa

Alvican og velferðarsvið Ísafjarðarbæjar hafa nú innleitt þráðlausa öryggishnappa í allar þjónustuíbúðir á Hlíf í eigu Ísafjarðarbæjar. Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í stofnkostnaði ásamt því að niðurgreiða öryggishnappa fyrir þá íbúa sem fá samþykkta slíka niðurgreiðslu frá Sjúkratyggingum.

Hnapparnir virka bæði innan- og utandyra og eru með talrás í báðar áttir og því hægt bæði að kalla eftir aðstoð og eins hringja í hnappinn til að bjóða fram aðstoð. Það er þjónustuver Alvican sem svarar neyðarkallinu allan sólarhringinn alla daga ársins.

Í hnöppunum er GPS tæki þar sem hægt er að sjá staðsetningu notanda þegar kallað er eftir aðstoð og þá hægt að senda aðstoð á rétta staðsetingu.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 4922002

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top