Heilsuvernd, sem rekur hjúkrunarheimilið á Vífilsstöðum, opnar það aftur nú…
Grunnskólinn á Ísafirði innleiðir öryggishnappa Alvican
Aukið öryggi starfsfólks í grunnskólum með öryggishnappi Alvican
Öryggi starfsfólks í grunnskólum er mikilvægur þáttur í góðu og öruggu skólastarfi. Starfsfólk getur í ákveðnum aðstæðum þurft að bregðast við krefjandi eða ógnandi hegðun nemenda eða annarra einstaklinga og þá getur skipt sköpum að geta kallað eftir aðstoð hratt og einfaldlega.
Öryggishnappur Alvican er hannaður þannig að starfsmaður getur kallað eftir aðstoð með því að ýta á hnappinn. Lausnin virkar bæði innan- og utandyra, sem gerir hana sérstaklega áhugaverða fyrir grunnskóla þar sem starfsfólk er á ferðinni milli kennslustofa, sameiginlegra rýma, skólalóðar og annarra svæða.
Hröð aðstoð þegar á reynir
Með öryggishnappi getur starfsmaður sent hjálparkall án þess að þurfa að leita að síma eða hringja. Hnappurinn er með talrás í báðar áttir, þannig að hægt er að hafa samband við þann sem kallar eftir aðstoð. GPS-staðsetning getur jafnframt auðveldað viðbragð ef starfsmaður er utandyra og einnig er fallskynjari í öllum öryggishnöppum frá Alvican sem virkar þannig að ef hnappurinn skynjar fall þá hringir hnappurinn eftir hjálp án þess að ýtt sé á hnappinn.
Fyrir skóla getur þetta þýtt skýrara og skilvirkara viðbragðskerfi þegar upp koma aðstæður þar sem starfsmaður telur sig þurfa aðstoð. Hægt er að skilgreina hverjir taka á móti hjálparköllum og fylgjast með stöðu og notkun í íslenskum hugbúnaði Alvican.
Öryggi sem nær út fyrir kennslustofuna
Einn af kostum lausnarinnar er að hún er ekki bundin við ákveðinn stað. Starfsmaður getur haft hnappinn með sér á skólasvæðinu og notað hann hvort sem hann er inni í byggingunni eða utandyra. Hnappurinn er einnig vatnsheldur.
Öryggishnappur Alvican getur því verið einföld viðbót við öryggis- og viðbragðsáætlun grunnskóla – lausn sem gefur starfsfólki möguleika á að kalla eftir aðstoð þegar þörf krefur og gerir skólanum kleift að bregðast skipulega við.
Alvican öryggishnappurinn
Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

