skip to Main Content

Samstarfssamningur við HealthTech Nordic framlengdur

Alvican hefur nú endurnýjað samstarfssamning við velferðartæknisamtök í Svíþjóð. Alvican hefur verið meðlimir í HealthTech Nordic samtökunum í 5 ár, en hugmynd Alvican var ein af sigurvegurum í samkeppni höfuðborga á norðurlöndunum árið 2016. Sú samkeppni var um lausnir á velferðartæknisviði sem kallaðist The Nordic Independen Living Challenge. Íslenskt hugvit sem getur aukið öryggi og lengt sjálfstæða búsetu eldri borgara og þannig sparað samfélaginu milljarða á hverju ári og um leið uppfyllt óskir eldri borgara sem vilja ekkert frekar en að búa áfram í sjálfstæðri búsetu.

http://healthtechnordic.com/startups/

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 4922002

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top