skip to Main Content

Öryggishnappar Alvican innleiddir í grunn- og framhaldsskóla landsins

Öryggishnappar Alvican hafa veriði verið í notkun hjá notendum núna í rúmlega 5 ár hér á landi. Lengi vel var hnappurinn aðeins fyrir eldri borgara og stuttu síðar var lausnin útfærð sem þráðlaust bjöllukerfi fyrir hjúkrunarheimili, sem sjúkrakallskerfi á Landspítalanum og núna síðast sem öryggishnappur fyrir starfsfólk. En starfsfólk í félagsþjónustu sveitarfélaga, í barnavernd, íbúðarkjörnum, hjúkrunarheimlinum og grunn- og framhaldsskólum hafa verið að nýta sér hnappinn til geta kallað eftir aðstoð ef þeir verða fyrir ógnandi hegðun.

Hnapparnir virka bæði innan og utandyra og þarf enga stjórnstöð þar sem það er talrás í báðir áttir í hnappnum og þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá íbúa sem eru á ferðinni og fara reglulega í göngutúra.

Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.

Ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsingar eða tilboð er hægt að senda tölvupóst á alvican@alvican.com.Hægt að fá nánari upplýsingar um hnappinn hér.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 616-0900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top