skip to Main Content

Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð velur heilsutæknilausnir frá Alvican

Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi völdu heilsutæknilausnir frá Alvican fyrir skömmu. Hafist var strax handa við innleiðingu á lausnum en allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þarf því enga uppsetningu, aðeins kennslu á búnaðinn og hugbúnaðinn sem er á íslensku og auðvitað íslenskt hugvit.

Fyrst var byrjað á innleiðingu á nýju 4G bjöllukerfi sem virkar bæði innan og utandyra og þarf enga stjórnstöð þar sem það er talrás í báðar áttir í hnappnum og þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá íbúa sem eru á ferðinni og fara reglulega í göngutúra. Möguleiki er á að bæta við innanhússtaðsetningu með Bluetooth tækni ef hjúkrunarheimilið er stórt og opnar deildir.

Þráðlausu öryggishnapparnir virka vel þegar breytingar ganga yfir og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.

Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.

Síðan var ráðist í innleiðingu á þráðlausum rápskynjurum sem senda skilaboð ef íbúi í byltuhættu þarf aðstoð og þar er boðið upp á fullkominn sveigjanleika og hægt að fjölga og fækka eftir þörfum ásamt því að að hægt er að stilla hvern rápskynjara eftir svefnvenjum og þörfum íbúa.

Þá voru teknir í notkun þráðlausir hitaskynjarar í lyfjaskápa og herbergi sem sendir skilaboð ef frávik verða í vöktun, en einnig er hægt að sjá hitastigið aftur í tímann til að tryggja að lyfin hafi verið geymd í réttu hitastigi hjá hjúkrunarheimilinu.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 616-0900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top