Í þessum mánuði ákvað Landspítalinn að velja íslenskar heilsutæknilausnir frá…

Hjúkrunarheimilið Klausturhólar innleiðir lausnir frá Alvican
Hjúkrunarheimilið Klausturhólar hefur hafið innleiðingu á velferðartæknilausnum Alvican. Allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þarf því enga uppsetningu, aðeins kennslu og búnaðinn og hugbúnaðinn sem er á íslensku og er auðvitað íslenskt hugvit.
Þráðlausu öryggishnapparnir virka vel þegar breytingar ganga yfir þar sem ekki þarf neina uppsetningu á staðnum og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.
Hnapparnir virka bæði innan og utandyra og þar enga stjórnstöð þar sem í hnappnum er talrás í báðar áttir og þess vegna er hægt að bæði hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá íbúa sem eru á ferðinni og fara reglulega í göngutúra
Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.