Hin vinsælu GPS öryggisúrin eru komin aftur í endurbættri útgáfu.…
Heilsuvernd hjúkrunarheimili innleiða velferðartækni frá Alvican
Eftir að Heilsuvernd tók við rekstri á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri var farið í innleiðingu á velferðartæknilausnum frá Alvican. Nýtt þráðlaust bjöllukerfi var sett upp sem starfsmenn svara í snjallsímum og með stofnanaviðmóti í appinu frá Alvican er hægt að nálgast alla tölfræði um notkun og stöðuna á kerfinu. Einnig var sett upp Snjallkerfi Alvican og rápskynjarar settir inn á öll herbergi sem kalla eftir aðstoð ef íbúar sem eru í byltuhættu vakna á nóttunni.
Alvican öryggishnappurinn
Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.