skip to Main Content

Hjúkrunarheimilið Eir innleiðir lausnir Alvican

Hjúkrunarheimilið Eir hefur hafið innleiðingu á velferðartæknilausnum Alvican. Allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þarf því enga uppsetningu, aðeins kennslu og búnaðinn og hugbúnaðinn sem er á íslensku og auðvitað íslenskt hugvit.

Þráðlausu öryggishnapparnir virka vel þegar breytingar ganga yfir þar sem ekki þarf neina uppsetningu og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.

Hnapparnir virka bæði innan og utandyra og þar enga stjórnstöð þar sem í hnappnum er talrás í báðar áttir og þess vegna er hægt að bæði hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur.

Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
alvican@alvican.com
+0354 6160900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

Náið í Alvican appið

google-play-badge
rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top