Í þessum mánuði ákvað Heilsugæslan í Vestmannaeyjum að velja íslenska…
Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur öryggishnappa Alvican í notkun
Heilbrigðiststofnun Suðurlands völdu tæknilausnir frá Alvican fyrir skömmu. Hafist var strax handa við innleiðingu á lausnum en allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þarf því enga uppsetningu, aðeins kennslu á búnaðinn og hugbúnaðinn sem er á íslensku og auðvitað íslenskt hugvit.
Fyrst var byrjað á innleiðingu á nýju 4G bjöllukerfi fyrir öldrunardeild á Selfossi sem virkar bæði innan og utandyra og þarf enga stjórnstöð þar sem það er talrás í báðar áttir í hnappnum og þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá íbúa sem eru á ferðinni og fara reglulega í göngutúra. Möguleiki er á að bæta við innanhússtaðsetningu með Bluetooth tækni ef hjúkrunarheimilið er stórt og opnar deildir.
Þráðlausu öryggishnapparnir virka vel þegar breytingar ganga yfir og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.
Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.
Síðan var ráðist í innleiðingu á þráðlausum öryggishnöppum fyrir starfsfólk sem geta óskað eftir aðstoð t.d. ef þau lenda í ógnandi hegðun og vilja kalla eftir aðstoð starfsfólks.
Alvican öryggishnappurinn
Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.