skip to Main Content

Þráðlausar lausnir Alvican við svefnrannsóknir á Landspítalanum

Landspítalinn heldur áfram að velja þráðlausar og íslenskar heilsutæknilausnir frá Alvican. Svefnrannsóknir á Landspítalanum innleiddu á dögunum bjöllukerfi fyrir svefnrannsóknarteymi sem fer fram á Landspítalanum Fossvogi.

Allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þurfa því enga uppsetningu, aðeins kennslu á búnaðinn og hugbúnaðinn sem er auðvitað íslenskt hugvit.

Nýja 4G bjöllukerfið virkar bæði innan- og utandyra og þarf enga stjórnstöð þar sem það er talrás í báðar áttir í hnappnum. Þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá sjúklinga sem eru á ferðinni á meðan þeir liggja inni. Möguleiki er á innanhússtaðsetningu með Bluetooth tækni en það hentar sérstaklega vel fyrir deildir þar sem skjólstæðingar eru mikið á ferðinni og starfsfólk þarf að finna þá.

Þráðlausu 4G bjöllurnar virka vel þegar breytingar ganga yfir og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.

Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 616-0900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top