skip to Main Content

Sjálfsbjargarheimilið endurnýjar 4G-bjöllukerfi sitt með lausnum frá Alvican

Sjálfsbjargarheimilið í Hátúni hefur gert samning við Alvican um að endurnýja hjálparhnappa fyrir skjóstæðinga sína sem búa í Sjálfsbjargarheimilinu. Samkvæmt Alvican, sem flytur hnappana inn hefur Sjálfsbjargarheimiliðið notað öryggishnappa frá Alvican undanfarin 4 ár og er komin mjög góð reynsla á lausnina.

Alda Ásgeirsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar, segir mikla ánægju vera með hnappana. Þeir veiti íbúunum meira öryggi og séu þægilegir fyrir starfsfólk. „Hægt er að hringja í hnappana og heyra í íbúunum okkar, hvar sem er. Einnig er staðsetningarbúnaður sem getur gert okkur kleift að fylgjast með íbúa ef þess er þörf og leyfi hefur verið gefið fyrir því,“ segir Alda.

„Hnappar virka bæði innan- og utandyra og getur íbúinn hringt í okkur hvar sem hann er staddur, úti eða inni. Með hugbúnaðinum er hægt að breyta á einfaldan hátt notendum þegar þeir útskrifast frá okkur og eru þeir allir tengdir vaktsímunum og því hægt að svara kallinu hvar sem starfsmaður okkar er staðsettur í húsinu,“ segir Alda jafnframt.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
alvican@alvican.com
+0354 6160900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

Náið í Alvican appið

google-play-badge
rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top