skip to Main Content

Alvican tilnefnt sem eitt af efnilegustu sprotafyrirtækjum landsins

Við erum mjög þakklát í Alvican teyminu fyrir að vera tilnefnd á lista Poppins & Partners sem eitt af efnilegustu sprotafyrirtækjum landsins.

Það hefur mikil framþróun orðið hjá okkur í Alvican og fjöldi viðskiptavina margfaldaðist á síðasta ári í öllum flokkum, þ.e. einstaklingar, stofnanir og sveitarfélög.

Covid árið hefur verið krefjandi fyrir flesta, en í þessu ástandi hafa líka skapast góð tækifæri fyrir velferðartæknilausnir eins og okkar. Við erum þakklát, fögnum nýju ári og erum spennt fyrir framtíðinni og þeim verkefnum sem framundan eru.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 4922002

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top