skip to Main Content

Heilsuvernd opnar aftur hjúkrunarheimilið á Vífilsstöðum með lausnum frá Alvican

Heilsuvernd, sem rekur hjúkrunarheimilið á Vífilsstöðum, opnar það aftur nú í ágúst með heilsutæknilausnum frá Alvican, eftir endurbætur sem hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Heilsuvernd hefur notað bjöllukerfi Alvican frá því félagið tók húsnæðið í notkun. Þetta eru afar gleðileg og mikilvæg tíðindi fyrir heilbrigðiskerfið á Íslandi. Fyrr á árinu opnaði Heilsuvernd einnig glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 100 íbúa í húsnæði sínu í Urðarhvarfi.

Öryggishnappar og bjöllukerfi Alvican hafa verið í notkun hér á landi undanfarin sex ár og með Alvican-hugbúnaðinum er komin mjög góð reynsla á lausnina.

Heilsuvernd er einn stærsti viðskiptavinur Alvican. Félagið rekur í dag fjögur hjúkrunarheimili og hefur notað lausnir frá Alvican frá árinu 2021. Þráðlausu bjölluhnapparnir veita íbúunum aukið öryggi og eru jafnframt mikið hagræði fyrir starfsfólk. Hægt er að hringja í bjölluhnappana og heyra í íbúunum, hvar sem þeir eru. Einnig er GPS-staðsetningarbúnaður í hnöppunum sem gerir kleift að fylgjast með íbúum ef þeir fara út af heimilinu, að því gefnu að heimild hafi verið veitt fyrir því.

Hnapparnir virka bæði innan- og utandyra og getur íbúinn kallað eftir aðstoð hvar sem hann er staddur, úti eða inni. Einnig er hægt að láta hnappinn senda skilaboð ef íbúinn fer út um útgang sem hann á ekki að fara um. Þá er mögulegt að forrita innanhússstaðsetningu þannig að hægt sé að sjá hvar íbúinn er staddur innandyra með Bluetooth-tækni.

Fallskynjarinn í bjölluhnappnum hringir síðan sjálfkrafa í vaktsíma ef hann nemur fall og sendir jafnframt staðsetningu með í skilaboðum.

Alvican óskar Heilsuvernd til hamingju með enduropnunina og það er frábært að félagið hafi ákveðið að halda áfram að nýta þetta sögufræga hús í þjónustu við aldraða.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
Back To Top