Á undanförnum mánuðum hafa á annan tug hjúkrunar- og dvalarheimila…
Hjúkrunarheimilið Eir innleiðir ferilvöktun með tækni frá Alvican
Hjúkrunarheimilið Eir hófu innleiðingu á velferðatæknilausnum frá Alvican fyrir nokkrum misserum. Allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þurfa því enga uppsetningu, aðeins kennslu á búnaðinn og hugbúnaðinn sem er á íslensku og auðvitað íslenskt hugvit.
Nú var ferilvöktun tekin í notkun sem byggir á innleiðingu á nýjum 4G bjölluhnöppum sem virka bæði innan- og utandyra og þarf enga stjórnstöð. Í bjölluhnappnum er talrás í báðar áttir í hnappnum og þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur. Möguleiki er á að bæta við innanhússtaðsetningu með Bluetooth tækni ef hjúkrunarheimilið er stórt og opnar deildir.
Þráðlausu bjölluhnapparnir virka þannig að ef íbúi fer í út af deildinni sinni þá fær vaktsíminn tilkynningu um það og getur gripið inn í.
Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.
Þá voru teknir í notkun þráðlausir hitaskynjarar í lyfjaskápa og lyfjaherbergi sem sendir skilaboð ef frávik verða í vöktun, en einnig er hægt að sjá hitastigið aftur í tímann til að tryggja að lyfin hafi verið geymd í réttu hitastigi hjá hjúkrunarheimilinu.
Alvican öryggishnappurinn
Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

