skip to Main Content

Hjúkrunarheimilið á Vífilsstöðum endurnýjar bjöllukerfi sitt með lausnum frá Alvican

Heilsuvernd sem rekur hjúkrunarheimilið á Vífilsstöðum hefur gert samning við Alvican um að endurnýja bjöllukerfið fyrir íbúa sem búa þar. Öryggishnappar og bjöllurkerfi Alvican hafa verið í notkun hér á landi undanfarin 6 ár með Alvican hugbúnaðinum og því er komin mjög góð reynsla á lausnina.

Heilsuvernd er einn stærsti viðskiptavinur Alvican en þau reka 3 hjúkrunarheimili í dag og hafa notað lausnir frá Alvican frá 2021. Nú þegar fjarskiptafyrirtækin hér á landi eru í miðjum fasa að taka niður 2G og 3G senda samkvæmt áætlun Fjarskiptastofnun, hafa stjórnendur Heilsuverndar ákveðið að uppfæra bjöllukerfið sitt með nýju íslensku hugviti og 4G bjölluhnappum. Þráðlausu bjölluhnapparnir veita íbúunum meira öryggi og þægilegir fyrir starfsfólk. Hægt er að hringja í bjölluhnappana og heyra í íbúunum, hvar sem þeir eru. Einnig er GPS staðsetningarbúnaður í hnöppunum sem gerir það kleift að fylgjast með íbúum ef þess er þörf og leyfi hefur verið gefið fyrir því.

Hnapparnir virka bæði innan- og utandyra og getur íbúinn hringt eftir aðstoð hvar sem hann er staddur, úti eða inni. Einnig er hægt að láta hnappinn senda skilaboð ef hann fer út um útgang sem hann á ekki að fara út um eða tímastilla þau skilaboð þannig að það komi aðeins skilaboð ef íbúinn fer út á ákveðnum tímum sem hann á ekki að vera á ferðinni. Einnig er möguleiki á að forrita innanhússtaðsetningu þannig að hægt er að sjá hvar íbúinn er innandyra með því að nota bluetooth tækni. Fallskynjarinn í bjölluhnappnum hringir sjálfkrafa í vaktsíma ef hann nemur fall og sendir staðsetningu með í skilaboðum.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
Back To Top