Dvalar- og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík hefur gert samning við…

Vífilsstaðir innleiðir nýjar heilsutæknilausnir frá Alvican
Heilsuvernd Vífilsstaðir sem hóf starfssemi núna í janúar 2023 og tók við þeirri þjónustu sem Landsspítalinn hefur veitt á Vílfilsstöðum fram til þessa með skjólstæðinga sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili, hefur hafið innleiðingu á heilsutæknilausnum Alvican. Allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þarf því enga uppsetningu, aðeins kennslu og búnaðinn og hugbúnaðinn sem er á íslensku og auðvitað íslenskt hugvit.
Þráðlausu öryggishnapparnir virka vel þegar breytingar ganga yfir þar sem ekki þarf neina uppsetningu og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.
Hnapparnir virka bæði innan og utandyra og þarf enga stjórnstöð þar sem það er talrás í báðir áttir í hnappnum og þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá íbúa sem eru á ferðinni og fara reglulega í göngutúra.
Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.
Þráðlausu rápskynjararnir eru allir stilltir persónulega fyrir hvern íbúa og kostirnir eru þeir að hægt er að færa þá til og fjölga og fækka í herbergjum eftir þörfum.
Rekstraraðili er Heilsuvernd Vífilsstaðir ehf., dótturfélag Heilsuverndar sem einnig rekur Heilsuvernd Hjúkrunarheimili á Akureyri og Heilsugæsluna í Urðarhvarfi.
Alvican öryggishnappurinn
Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.