skip to Main Content

Landspítalinn velur heilsutæknilausnir frá Alvican

Í þessum mánuði ákvað Landspítalinn að velja íslenskar heilsutæknilausnir frá Alvican. Hafist var strax handa við innleiðingu á lausnum en allar lausnir frá Alvican eru þráðlausar og þarf því enga uppsetningu, aðeins kennslu á búnaðinn og hugbúnaðinn sem er auðvitað íslenskt hugvit.

Fyrst var byrjað á innleiðingu á nýju 4G bjöllukerfi sem virkar bæði innan og utandyra og þarf enga stjórnstöð þar sem það er talrás í báðar áttir í hnappnum og þess vegna er bæði hægt að hringja úr hnappnum og hringja í hnappinn. Einnig er GPS tæki í hnappnum og því er hægt að staðsetja hnappinn utandyra og koma notandanum til aðstoðar þar sem hann er staddur og hentar því mjög vel fyrir þá sjúklinga sem eru á ferðinni og fara í göngutúra á meðan þeir liggja inni. Möguleiki er á innanhússtaðsetningu með Bluetooth tækni en það hentar sérstaklega vel fyrir deildir þar sem skjólstæðingar eru mikið á ferðinni og starfsfólk þarf að finna þá.

Þráðlausu 4G bjöllurnar virka vel þegar breytingar ganga yfir og hægt að flytja til hnappa, fjölga eða fækka eftir þörf hverju sinni.

Hnöppunum fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni, fá stöðu á hnöppunum og tölfræði skýrslur um notkun.

Síðan var ráðist í innleiðingu á þráðlausum rápskynjurum sem senda skilaboð ef sjúklingar sem liggja inni á deildinni eru í byltuhættu og þurfa aðstoð t.d. við það að fara á salerni. Í rápskyjurunum frá Alvican er boðið upp á fullkominn sveigjanleika og hægt að fjölga og fækka eftir þörfum ásamt því að að hægt er að stilla hvern rápskynjara eftir svefnvenjum og þörfum skjólstæðings.

Rápskynjari Alvican

Rápskynjari Alvican er oftast tengdur stofnankerfi Alvican. En það er kerfi hannað fyrir dvalarheimili sem vilja einfalda og markvissa lausn til að fylgjast með hvort íbúi fer á stjá á nóttunni.

Lausnin veitir öryggi fyrir notendur í byltuhættu án þess að skerða persónufrelsi. Öryggið sem fylgir því að hafa rápskynjara er augljóst og möguleikar eru á mikilli hagræðingu fyrir umönnunaraðila hvort heldur er fyrir einstakling sem býr einn eða hópa sem umönnunaraðilar sinna.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
alvican@alvican.com
+0354 6160900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

Náið í Alvican appið

google-play-badge
rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top