skip to Main Content

Hraunbúðir í Vestmannaeyjum innleiða ferilvöktun sem byggir á LoRa tíðni

Hjúkrunarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum hefur innleitt snjallkerfi Alvican og rápskynjara inn í öll herbergi. Rápskynjarinn sendir frá sér skilaboð um leið og notandinn ætlar að fara fram úr og ef hann er í byltuhættu er hægt að aðstoða hann áður en hann fer af stað. Snjallkerfið er bæði tengt GSM kerfi og netinu þannig að ef rafmagnið fer af húsnæðinu þá helst þessi stafræna vöktun áfram og sendir skilaboð í snjallsíma hjúkrunarheimilisins.

Lausninni fylgir íslenskur hugbúnaður þar sem hægt er að stýra hverjir eru svarendur hverju sinni og hægt að sjá tölfræði skýrslur um notkun íbúa.

Alvican öryggishnappurinn

Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.

Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.

Skoða vöru
logo-white_transparent

Hátún 12
105 Reykjavík
Ísland
info@alvican.com
+0354 616-0900

Kennitala: 5410151240
Banki: Arionbanki hf
Reikningur: 0301-26-012477
Vsk númer: 136833

rannis-white

Stuðningsaðili: Rannís

Back To Top