Hin vinsælu GPS öryggisúrin eru komin aftur í endurbættri útgáfu.…

Hjúkrunarheimilið Dalbær endurnýjar bjöllukerfi sitt með lausnum frá Alvican
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Dalbær á Dalvík hefur gert samning við Alvican um að endurnýja hjálparhnappa fyrir skjólstæðinga sína sem búa í hjúkrunarheimilinu. Öryggishnappar Alvican hafa verið í notkun hér á landi undanfarin 6 ár með Alvican hugbúnaðinum og því er komin mjög góð reynsla á lausnina.
Dalbær hefur verið með lausnir Alvican síðan 2020 og nú þegar fjarskiptafyrirtækin hér á landi eru í miðjum fasa að taka niður 2G og 3G senda samkvæmt áætlun Fjarskiptastofnun, innleiddi Dalbær í síðasta mánuði nýja íslenska 4G bjölluhnappa. Þráðlausu bjölluhnapparnir veita íbúunum meira öryggi og þægilegir fyrir starfsfólk. Hægt er að hringja í bjölluhnappana og heyra í íbúunum, hvar sem þeir eru. Einnig er GPS staðsetningarbúnaður í hnöppunum sem gerir það kleift að fylgjast með íbúum ef þess er þörf og leyfi hefur verið gefið fyrir því.
Hnapparnir virka bæði innan- og utandyra og getur íbúinn hringt eftir aðstoð hvar sem hann er staddur, úti eða inni. Einnig er hægt að láta hnappinn senda skilaboð ef hann fer út um útgang sem hann á ekki að fara út um eða tímastilla þau skilaboð þannig að það komi aðeins skilaboð ef íbúinn fer út á ákveðnum tímum sem hann á ekki að vera á ferðinni. Fallskynjarinn í bjölluhnappnum hringir sjálfkrafa í vaktsíma ef hann nemur fall og sendir staðsetningu með í skilaboðum.
Alvican öryggishnappurinn
Öryggishnappurinn okkar virkar bæði innan- og utandyra og hægt er að fylgjast með staðsetningu notanda með upplýstu samþykki hans. Það þarf enga sérstaka tæknikunnáttu til að nota öryggishnappana okkar. Notandi þarf ekki að eiga eða kunna á snjallsíma. Aðstandendur eða umönnunaraðilar hafa aðgang að snjallforriti okkar í gegnum snjallsíma, spjaldtölvu eða tölvu.
Hnappurinn er vatnsheldur og hægt er að virkja fallvörn og þá lætur hnappurinn vita ef notandi tækisins dettur og sendir sjálfkrafa skilaboð ef notandinn getur ekki gert viðvart. Einnig er hægt að stilla hnappinn þannig að ef tækið hreyfist utan valins öryggissvæðis þá sendir hnappurinn skilaboð í síma aðstandenda eða umönnunaraðila. Öryggishnappurinn getur einnig gert viðtakendum viðvart ef notandi hnappsins sest t.d. upp í bifreið og fer þannig á meiri ferð en forstillt hraðatakmörk.