Undanfarin ár hefur Alvican fengið ýmis krefjandi verkefni frá notendum…

Alvican hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóð til markaðssóknar á norðurlöndunum
Nýverið fékk Alvican ehf. styrk frá Rannís til að hefja undirbúning á markaðssókn á lausnum sínum í Skandinavíu. Með markaðsstyrknum frá Tækniþróunarsjóði var Alvican ehf. gert kleift að greina markaði og undirbúa markaðssókn á erlendri grundu, þ.e. útbúa kynningarefni, sækja ráðstefnur og fleira. Gerð var nánari samkeppnisgreining með samstarfsaðilum í Skandinavíu og markaðsathugun.
Lausnir Alvican eru íslenskt hugvit en félagið skilgreinir sig sem velferðartæknifyrirtæki sem hefur þróað lausnir í umönnun eldri borgurum og til að lengja sjálfstæða búsetu eldri borgara og auka öryggi þeirra. Alvican er er framsækið þróunarfyrirtæki sem hefur framleitt bæði tæknibúnað og hugbúnað til að takast á við þau verkefni sem blasir við vegna öldrun þjóða.
Mikil þörf er á bæði innlendum og erlendum mörkuðum fyrir lausnir Alvican en innleiðing á velferðartækni verður lykilinn að umönnum á ört vaxandi hóp eldri borgara í vestrænum heimi en fjölga þurfi heilbrigðisstarfsfólki um 45% fyrir árið 2040 samkvæmt greiningu McKinsey sem gerð var fyrir íslenska ríkið, ef ekki yrði innleiddar lausnir og velferðartækni. Kostnaður við heilbrigðiskerfið vegna öldrun þjóðarinnar myndi aukast um 90%. Með nýjum ferlum, velferðartækni og nýsköpun myndi ekki þurfa nema 3% fjölgunar heilbrigðisstarfsfólks og um 30% hækkunar á heildarkostnaði árið 2040.
Lausnir Alvican eru nú þegar komnar á markað á Íslandi og eru notaðar af einstaklingum, stofnunum og sveitarfélögum út um land allt. Lausnirnar hafa verið gefnar út fyrir iOS og Android en einnig eru þær notaðar á vefviðmóti í spjaldtölvum og hefðbundum tölvum.